Aftersun
ég veit ekki afhverju ég vel alltaf að horfa á sorglegustu bíómyndir sem eru til en vá. Ég fattaði ekki fyrr en hann labbaði út í sjóinn hvað bíómyndin væri um (að dottir hans væri að muna eftir síðustu minningunum þeirra saman áður en hann framdi sjálfsmorð) en what the fokkkk afhverju var hann að segja að hún gæti alltaf sagt honum hvað sem er ef að hann vissi að hann myndi ekki vera á lífi fyrir það. Rave scenan sem við sáum flashbacks af var svo sorgleg, ætli það sé hún að vera pirruð út í hann fyrir að hafa farið frá henni? held það því þá var hún eldri. Líka það að myndin byrjaði og endaði á video tapeinu var svo sorglegt, síðan var hún með sömu mottu og hann keypti fyrir hana. Var að lesa review sem sagði “He wants to give her the world and the tragedy of it all of course is that she doesn't want the world, she just wants a dad.” va hvað það er satt, hann var alltaf að reyna gera allt skemmtilegt fyrir hana og varð pirraður útí sjálfan sig þegar að hann vissi að hann hefði ekki efni á því sem hún vildi. Eins og kvöldið sem hann var að segjast ætla kaupa söng tíma fyrir hana og hún sagði að hann hefði ekki efni á því, það var svo oþæginlegt því maður gat séð hversu niðurbrotin hann var en hun var ekki að reyna það, en hun hugsar örugglega ennþá um það mörgum árum eftir á og kennir sjálfri sér um. Líka under pressure scenan með “this is our last dance” ÞEGAR ÞETTA VAR SÍÐASTA SKIPTIÐ ÞEIRRA AÐ DANSA SAMAN 😫