Midsommar
Þetta er svo ótrúlega vönduð mynd það er ótrúlegt, ég mæli hiklaust með henni og sérstaklega að horfa á hana í annað skipti því þá tekur maður meira eftir hlutum. T.d var foreshadowing bara alveg frá byrjun, hún er með mynd af birni í herberginu sínu fyrir ofan rúmið sitt og síðan í lokin er náttúrlega eitt frekar disturbing sem gerist með birni (ekki tónlistarmanninum) LÍKA þegar allir vinir sænska gæjana voru fyrst mætt til að hitta fjölskylduna sína þá sagði pabbinn “welcome” við alla hina og tók í hendurnar þeirra en við hana þá knúsaði hann hana og sagði “welcome home” síðan var þvst sænski vinurinn sem fékk þau þarna líka búinn að missa foreldra sína svo mér líður eins og hann hafi planað frá byrjun að hún myndi verða hlutur af fjölskyldunni. Ég fílaði ekki hversu mikið gore var og hversu lengi það var sýnt. Mér fannst samt geðveikt nett þegar þau voru öll uppdópuð á eiturlyfjum þá urðu hlutir líka trippy fyrir áhorfendur, t.d. þá urðu augun mjög skrítin á öllum og blómin á kórónu may queen byrjuðu að hreyfast. Líka þegar Florence (man ekki nafnið hennar í myndinni) var að crasha out því hún sá kærasta sinn með rauðhærðu gellunni, þá byrjuðu allar hinir að finna til með henni bókstaflega. Það er vel skrýtið en samt mjög áhugavert einhvern veginn hvernig þau leika öll tilfinninguna sem einhver er að upplifa, sérstaklega í lokin þegar nokkrir voru brenndir lifandi og allir hinir öskruðu og létu eins og þeir væru líka að deyja. Ég veit samt ekki alveg hvort þau voru að leika eða hvort þeim leið eins og þau væru virkilega öll það tengt að þau deildu tilfinningum. LÍKA ég sver að fjölskyldan framdi ekki, ókei hear me out… Pelle sænski gæinn hann sagði að fjölskylda hans dó í bruna og þá fór hann í midsommar cultið, ég held að fjölskylda hans var drepin af þeim og líka hennar og þess vegna urðu meiri líkur að hún myndi joina því henni leið svo illa heima hjá sér og þá voru líka færri sem þekktu hana. Allavega er þetta besta hryllingsmynd og mest creepy of unsettling sem ég hef séð